motherlickers attention please
24. apríl 2007 klukkan 12:49
ég er hætt ég nenni þessu ekki lengur, er ekki með netið heima hjá mér þannig að þegar þröfin fyrir að blogga heltekur mig þá hef ég ekki aðgang að vefnum. Ég ætla að leggja þessari síðu og EKKI fá mér nýja.
Ég er með myspace síðu www.myspace.com/sylgils og rita þar nokkur orð öðru fremur.
Takk fyrir lesturinn þið sem höfðuð þolinmæði.
Salut.

25. september 2006 klukkan 23:55
Það er ansi langt síðan að ég hef komið hingað inn... en þó er ég nú ekki dauð. Það verður að taka sér frí frá tölvunotkun á sumrið og eyða tímanum frekar í að anda að sér fersku lofti og tæma hugan úti í náttúrunni og fylla hann af björtum og fallegum hugsunum til að ilja sér við í skammdeginu sem fer óðum að skella á! Shit hvað ég er spök :)
Þetta er búið að vera með eindæmum gott sumar hjá mér, blíða hvert sem ég fór, frí meira og minna allt sumarið því ég er svo ansi góð að skipuleggja vinnuskýrslur. Fór meðal annars í sumarbústað í fljótunum, skoðunarferð á kárahnjúka, sumarbústað á Egilsstöðum, Mývatn, Ásbyrgi, skoðaði torfbæ sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu og borðaði þar lummur og fékk heitann sopa með því, fór auðvitað eitthvað á Blönduós og fór með Togga út í selvík... og svo var eitthvað um djamm og sólböð og allt annað sem að tilheyrir sumrinu :)
Held að ég sé ekkert að fara í nein smáatriði.
Það eru nú heldur betur orðin kaflaskipti í lífi mínu og það ekki bara ein heldur nokkur. Í fyrsta lagi þá er ég flutt úr Höfuðkaupstað Íslands í höfuðkaupstað norðurlands þar sem ég bý heima hjá tengdaforeldrum mínum eins og stendur svo það má segja að það séu önnur kaflaskipti að vera komin undir annara þak aftur. Svo er mín hætt að vinna hjá ríkinu þ.e.a.s. á heilbrigðisstofnun og farin að vinna í grunnskóla, nánar tiltekið í Lundarskóla þar sem ég vinn 50/50 sem skólaliði og svo sem stuðningsfulltrúi og það EKKI í vaktavinnu!!, og svo er það rúsínan í pulsuendanum og það er að ég er hætt að reykja.. komnir 10 reyklausir dagar og get ég sagt með hreinni samvisku að mig langar ekki baun að kveikja mér í rettu lengur hvort sem það er eftir matinn eða annað, blessunarlega laus við þann skít (7, 9, 13).
Já og auðvitað eru það kaflaskipti að ég skuli fá mig til að setjast fyrir framan tölvuna og blogga, það eru sjaldséðir hvítir hrafnar....
En allavega mun ég gera mitt besta ða skrifa eitthvað hérna inn við og við svo þið sem hafið verið að líta hérna við og ekki gefist upp á mér þá getið þið tekið upp trúnna aftur og þið hin sem fyrir löngu eruð búin að gefast upp... jahh hvað get ég sagt... ég kem alltaf aftur :)
Veriði sæl, kv. Sylvía